Tap Askar Capital  á fyrri hluta ársins nam 961 milljónir króna í samanburði við 207 milljón króna hagnað á fyrri hluta ársins 2007.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar kemur fram að þóknanatekjur voru 679 milljónir króna, sem er 8% aukning frá fyrra ári en hreinar rekstrartekjur voru 1.109 milljónir króna, sem er 30% aukning frá fyrra ári.

Varúðarniðurfærsla vegna útlána eru 748 milljónir króna.

Heildareignir félagsins í lok tímabilsins eru 53,7 milljarðar króna en um áramót voru eignir 34,3 milljarðar króna

Eignir í stýringu eru 40 milljarðar króna og skuldir í stýringu 270 milljarðar króna. Þá er eiginfjárþáttur 17,2%

Tap en mörg tækifæri fyrir

Benedikt Árnason, forstjóri Askar Capital segir í tilkynningunni að á fyrri hluta ársins hafið verið haldið áfram uppbyggingu innviða og viðskiptasambanda, enda bankinn ekki nema 18 mánaða gamall og aðeins eitt ár frá því að hann fékk starfsleyfi.

„Þrengingar á alþjóðlegum fjármálamarkaði hafa leitt til þess að uppbygging í fasteigna- og framtaksfjárfestingaverkefnum hefur verið mun hægari en áætlanir gerðu ráð fyrir,“ segir Benedikt.

„Á hinn bóginn hafa aðstæður á mörkuðum leitt til tækifæra á öðrum sviðum sérhæfðrar fjármálaráðgjafar, svo sem í gjaldeyrisafurðum, skuldastýringu og milligöngu um lántökur. Það eru vissulega vonbrigði að tap skuli vera af rekstri á fyrri hluta ársins en tapið kemur að mestu til af varúðarniðurfærslu vegna útlána, sér í lagi vegna dótturfélagsins Avant. Við höfum brugðist við breyttum aðstæðum og í áætlun okkar fyrir síðari hluta ársins gerum við ráð fyrir að þóknanatekjur verði hærri en rekstrargjöld.“