Rekstur Askar Capital var mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni 12,4 milljörðum króna eftir skatta. Í kjölfar alþjóðlegrar fjármálakreppu og bankahruns á Íslandi hefur orðið bankinn þurft að afskrifa háar fjárhæðir sem leitt hefur til rýrnunar eigin fjár. Þannig námu varúðarniðurfærslur vegna lána og viðskiptakrafna 6,5 milljörðum króna og afskrift viðskiptavildar 2,9 milljörðum króna segir í tilkynningu til Kauphallar. Askar Capital fjárfestingarbanki starfrækir áhætturáðgjöf sem einkum sinnir skulda- og áhættustýringu fyrir stofnanafjárfesta, sveitarfélög og stærri fyrirtæki og fyrirtækjaráðgjöf sem aðallega stýrir erlendum fasteignaverkefnum. Í samstæðu Askar Capital er einnig eignaleigufyrirtækið Avant sem einkum fjármagnar bílaviðskipti einstaklinga.

Avant tapaði 200 milljónum

Umhverfið á bílalánamarkaði gerbreyttist á árinu 2008, eftirspurn snarminnkaði og möguleikar á nýrri fjármögnun lokuðust. Eignir Avant námu 30,5 milljörðum króna á árinu og nam tap ársins 0,2 milljörðum króna. Varúðarniðurfærslur vegna verðfalls eigna hafa leitt til þess að eiginfjárhlutfall samstæðunnar hefur farið undir lögbundið lágmark. Nánari skoðun á eigna- og útlánasafni í mars og apríl leiddu til frekari afskrifta í ársreikningi ársins 2008 og er eiginfjárhlutfall samstæðunnar því neikvætt í lok árs 2008.

Fjármálaeftirlitið veitti félaginu frest til 15. maí til að koma eiginfjárhlutfalli samstæðunnar í lögbundið horf. Allir óveðtryggðir lánveitendur móðurfélags Askar hafa samþykkt tillögur félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu. Þessir kröfuhafar munu taka yfir félagið á hluthafafundi sem haldinn verður í lok maí. Á þeim fundi verður jafnframt lögð fram tillaga stjórnar félagins um að færa hlutafé núverandi hluthafa niður að fullu.

Saga Capital eignast 18% hlut

Núverandi hluthafar Askar Capital eru Moderna Finance AB, sem á 80,8% hlut, og 15 aðrir hluthafar sem samtals eiga 19,2% hlut. Nýir hluthafar verða, nái tillagan fram að ganga á hluthafafundi, Glitnir banki með um 53% hlut, Saga Capital með um 18% hlut og 10 aðrir hluthafar með samtals um 29% hlut. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar m.v. 31. mars 2009, var um 19%, að teknu tilliti til þeirra breytinga sem leiða af fjárhagslegri endurskipulagningu. Þessar breytingar sem leiða af fjárhagslegri endurskipulagningu eru háðar samþykki Fjármálaeftirlitsins um eigendur virkra eignarhluta í fjármálafyrirtækjum.