Verst var ástand verðmerkinga í verslunum 10-11 Borgartúni, 10-11 Lyngási, 10-11 Staðarbergi og 10-11 Firði, þar sem hlutfall athugasemda vegna verðmerkinga var yfir 50%, þegar Neytendastofa gerði í ágústmánuði könnun á ástandi verðmerkinga í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu.

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.

Þar kemur fram að farið var í 77 verslanir og valdar af handahófi 25 vörur í hverri verslun. Heildarúrtak könnunarinnar var því 1.925 vörur. Kannað var hvort vörurnar væru verðmerktar og hvort verðmerking á hillu samræmdist verði í kassa.

Fram kemur á vef Neytendastofu að stofnuninni hafa borist margar kvartanir vegna slæmra verðmerkinga í matvöruverslunum „og kom því ekki á óvart að könnunin skyldi leiða í ljós að ástandi verðmerkinga í matvöruverslunum sé almennt ábótavant,“ segir á vef stofnunarinnar.

Af verslununum 77 voru 6 verslanir ekki með neinar athugasemdir.

Þær eru 11-11 Grensásvegi, 11-11 Grafarholti, 11-11 Þverbrekku, Krónan Háholti, Nóatún Hringbraut og Samkaup Búðakór.

Athugasemdir í öðrum verslunum voru misjafnlega margar, allt frá einni athugasemd í 19 af þeim 25 vörum sem skoðaðar voru, samkvæmt því sem kemur fram á vef Neytendastofu.

Þá eru heildarniðurstöður könnunarinnar þær að af vörunum 1.925 voru verðmerkingar í ólagi í 16% tilvika. Til samanburðar má þess geta að árið 2006 voru verðmerkingar í 12,2% tilvika í ólagi og 5,2% árið 2005.

Í kjölfar könnunarinnar hyggst Neytendastofa senda öllum verslunarkeðjum bréf þar sem greint er frá ástandi í hverri og einni verslun. Könnuninni verður fylgt eftir og ef þurfa þykir teknar ákvarðanir um hugsanleg viðurlög vegna slæms ástands verðmerkinga.