Vilmundur Jósefsson - Aðalfundur SA
Vilmundur Jósefsson - Aðalfundur SA
© BIG (VB MYND/BIG)
Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Ríkisskattstjóri hafa ákveðið að taka höndum saman og ráðast í sérstakt átak undir yfirskriftinni Leggur þú þitt að mörkum? Greint er frá átakinu á vefsíðu SA og er markmið þess að hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að standa rétt að samningum sín í milli.

Athyglinni verður beint sérstaklega að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og áhersla lögð á að svört atvinnustarfsemi, undanskot á launatengdum gjöldum og brot á kjarasamningum séu skaðleg fyrir alla hlutaðeigandi og samfélagið í heild sinni, segir á vef SA.

Átakið mun standa fram á haustmánuði. Fulltrúar aðilanna þriggja munu heimsækja vinnustaði, kanna aðstæður, veita ráðgjöf og fræðslu um viðeigandi reglur og lagaramma og hvetja bæði atvinnurekendur og launafólk til að gera nauðsynlegar úrbætur ef þurfa þykir.