Átján fara frá sérstökum saksóknara vegna lægri framlaga á fjárlögum á næsta ári. VB.is greindi frá uppsögnunum í morgunn en embættið staðfesti þær nú síðdegis. Fjórum var sagt upp störfum í dag og einum starfsmanni tilkynnt um fyrirhugaða uppsögn á næsta ári.

Fjórir lögreglumenn munu flytjast frá embættinu yfir á önnur embætti, þrír lögreglumenn sem voru fengnir að láni frá öðrum embættum flytjast til baka. Þá fengu sex starfsmenn tilkynningu um að tímabundnir samningar þeirra yrðu ekki endurnýjaðir.

Á síðustu vikum hafa að auki  7 starfsmenn sagt upp störfum af eigin frumkvæði.