Úrvalsvísitalan hefur hækkað um rétt tæp 2% það sem af er degi. Gengisvísitalan hefur aftur á móti lækkað um 0,5%.

Mest hækkun í dag er hjá Atork sem hefur hækkað um 50%, Century Aluminum hefur hækkað um 10%, Marel um 6,5% og Össur um 6,4%.

Mest lækkun er hjá Alfesca 11,40, Icelandair um 4,6%, Eimskip hefur lækkað um 0,7% og Bakkavör um 0,3%