Atorka hefur ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um heimild til að leita nauðasamnings. Frumvarp að nauðasamningi gerir ráð fyrir að lánardrottnar umbreyti kröfum í skuldabréf og hlutafé. Frumvarpið gerir ráð fyrir að endurheimtur kröfuhafa verði a.m.k. 40% en samkvæmt efnahagsreikningi félagsins frá 30. september 2009 verða endurheimtur kröfuhafa ríflega 60%.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að virði skráðra eigna Atorku hefur hækkað umtalsvert á síðustu mánuðum og einnig eru batamerki sjáanleg á rekstri Promens, stærstu eign félagsins. NBI hf., Íslandsbanki hf. og lífeyrissjóðir verða stærstu hluthafar Atorku við samþykkt nauðasamnings, en hlutafé núverandi hluthafa verður fært niður að fullu.

80% eiginfjárhlutfall

Eigendur 65% krafna á hendur félaginu hafa mælt með nauðasamningi. Ef kröfuhafar samþykkja nauðasamning félagsins verður fjárhagsleg staða Atorku trygg og eiginfjárhlutfall félagsins verður um 80%. Þannig verður Atorka vel í stakk búið til að styðja við eignir sínar segir í tilkynningu.

Markmið samningsins er að vernda verðmæti eigna félagsins og hámarka virði þeirra fyrir lánardrottna.

Stjórn Atorku hefur ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna sína. Fjárhagsstaða Atorku breyttist til hins verra við fall íslenska bankakerfisins á haustmánuðum 2008. Fyrir fall bankanna var útlit fyrir að Atorka myndi standa af sér alþjóðlegu efnahagskreppuna. Eftir fall bankanna og mikla gengislækkun íslensku krónunnar varð stjórn Atorku hins vegar ljóst að nauðsynlegt væri að endurskipuleggja fjárhag félagsins.

Viðræður félagsins við lánardrottna hófust í október 2008 sem síðar leiddu til þess að aðilar undirrituðu kyrrstöðusamning í febrúar 2009. Stjórn og stjórnendur Atorku hafa lagt höfuðáherslu á að vernda verðmæti eigna félagsins og jafnframt hafa þeir lagt mikla vinnu í að draga úr áhrifum efnahagslægðarinnar á dóttur- og hlutdeildarfélög.

Stjórn Atorku leggur áherslu á að með samþykkt nauðasamnings muni félagið geta stutt við dóttur- og hlutdeildarfélög sín og hámarkað þannig virði eigna.  Forsendur nauðasamningsins gera ráð fyrir að endurheimtuhlutfall kröfuhafa verði a.m.k. 40% en samkvæmt efnhagsreikningi félagsins frá 30. september 2009 verður endurheimtuhlutfallið 60%. Við undirbúning nauðasamningsins hefur stjórn Atorku lagt áherslu á samstarf við alla hagsmunaaðila um úrlausn mála, að skapa traustan ramma um stjórnun, eignarhald og að standa vörð um verðmæti eigna Atorku til framtíðar.  „Nauðasamningurinn tryggir að hægt verði að endurskipuleggja fjárhag Atorku sem orðið hefur fyrir skakkaföllum vegna almennrar efnahagslægðar í heiminum og vegna hruns íslenska bankakerfisins. Stjórn Atorku telur að nauðasamningurinn tryggi fjárhagslega getu félagsins til að styðja áfram vel við eignir þess. Nú ríður á að nýta allan þann tíma sem nauðsynlegur er til að hámarka endursöluverðmæti eignanna. Verðmæti eigna félagsins náði lágmarki í mars 2009 en hefur hækkað umtalsvert síðan. Skráðar eignir Atorku hafa hækkað um ríflega 100% á þessu tímabili. Þetta mun vonandi leiða til þess að endurheimtur kröfuhafa verði talsvert hærri en nauðasamningurinn gerir ráð fyrir. Það eru stjórn félagsins hins vegar mikil vonbrigði að þessu ferli ljúki án þess að hluthafar félagsins fái nokkurn hlut í þeim viðsnúningi sem vonandi verður á rekstri Atorku á næstum misserum," sagði Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnarformaður Atorku Group hf. í tilkynningu.