Átta óskuldbindandi tilboð bárust í 49% hlut í Skeljungi ehf. og tengdum félögum, sem Íslandsbanki er með í sölumeðferð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Umræddur hlutur var settur í söluferli í lok nóvember. Þeim sex tilboðsgjöfum sem áttu hæstu óskuldbindandi tilboðin, verður gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins, samkvæmt tilkynningu Íslandsbanka. Skuldbindandi tilboðum með fyrirvara um áreiðanleikakönnun ber að skila í síðasta lagi mánudaginn 21. desember 2009. Skuldbindandi tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila. Í kjölfarið taka við viðræður við hæstbjóðendur.