Átta umsóknir bárust um þrjú embætti dómara við Hæstarétt Íslands, sem auglýst voru laus til umsóknar vegna tímabundinnar fjölgunar í réttinum, sbr. lög nr. 12/2011. Umsóknarfrestur rann út 14. mars síðastliðinn.

Umsækjendur eru í stafrófsröð:


Benedikt Bogason, héraðsdómari og dómstjóri héraðsdóms Vesturlands
Eiríkur Tómasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands
Greta Baldursdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Helgi I. Jónsson, héraðsdómari og dómstjóri héraðsdóms Reykjavíkur
Jónas Jóhannsson, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur
Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn.