Á öðrum ársfjórðungi 2015 voru að meðaltali 9.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 5% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 5,6% hjá konum og 4,5% hjá körlum. Atvinnulausum fækkaði um 1.400 manns milli ára og hlutfallið lækkaði um 0,9 prósentustig. Þetta kemur fram í nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands .

Á tímabilinu voru að jafnaði 196.300 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði sem jafngildir 84,3% atvinnuþátttöku. Frá öðrum ársfjórðungi 2014 hefur fólki á vinnumarkaði fjölgað um 6.400 og atvinnuþátttakan aukist um 1,1 prósentustig eða úr 83,1%.

Atvinnuþátttaka kvenna var 81% en karla 87,5%. Borið saman við sama ársfjórðung 2014 þá var hlutfall kvenna á vinnumarkaði 83,6% og hlutfall karla var 86,9%.

Hlutfall starfandi var 80%

Á öðrum ársfjórðungi 2015 voru 186.400 manns starfandi eða 80% af mannfjölda. Frá öðrum ársfjórðungi 2014 til annars 2015 fjölgaði starfandi fólki þegar á heildina er litið um 7.700 manns og hlutfallið hækkaði um 1,8 prósentustig.

Hlutfall starfandi kvenna var 76,5% og starfandi karla 83,5%. Starfandi konum fjölgaði um 3.700 og körlum um 4.200 frá öðrum ársfjórðungi 2014. Hlutfall starfandi kvenna var þá 74,6% og starfandi karla 81,8%.