Vinnumálastofnun greiðir rúmlega 1,5 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar fyrir tímabilið 20. júlí til 19. ágúst. Greitt verður til rúmlega 12.700 einstaklinga.

Fyrir júlí nam heildarupphæð atvinnuleysistrygginga rúmum 1,6 milljörðum króna. Þá var greitt til 13.788 einstaklinga.