Delta Airlines
Delta Airlines
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Alls kyns aukagjöld sem flugfélög leggja ofan á miðaverð, svo sem sala á mat og farangursgjald (sem áður voru hluti af miðaverði) auk nettengingar í flugvélinni, svo nokkur dæmi séu tekin, skiluðu flugfélögum heimsins um 22 milljörðum dala, um 2.530 milljörðum króna, í auknar tekjur á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Wall Street Journal vitnar í.

Samkvæmt skýrslunni sögðu 47 af stærstu flugfélögum heims samanlagðar tekjur sínar af aukagjöldum hafa hækkað um 38% frá árinu 2009. Árið 2007 tilkynntu aðeins 23 flugfélög um tekjur vegna aukagjalda, samanlagt um 2,5 milljarða dala.

Fyrst um sinn voru það lággjaldafélög á borð við Ryanair, sem hefur verið brautryðjandi á þessu sviði, sem rukkuðu aukagjöldin en flugfélög á borð við United Continental, Delta og American Airlines feta þessa braut í sífellt meiri mæli.