Velta á fasteignamarkaði nam rúmlega  3,5 milljörðum króna í síðustu viku og jókst um 7% á milli vikna, samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins.

Veltan hefur ekki verið há það sem af er þessu ári en hefur þó aukist nokkuð síðustu tvær vikur. Alls voru 104 samningar þinglýstir í vikunni sem er þó mesti fjöldi á einni viku á þessu ári en þinglýstir samningar hafa verið að meðaltali 75,2 á viku þar sem af er af þessu ári.

Meðalvelta á hvern samning var 33,9 milljónir króna samkvæmt því sem kemur fram hjá Fasteignamati ríkisins. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.

Á meðfylgjandi línuriti má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu nokkurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Greiningadeild Kaupþings segir í hálffimm fréttum sínum í gær að skýr merki séu komin fram um að kólnun sé hafin á fasteignamarkaði. Þá gerir greiningadeildin ráð fyrir áframhandlandi kólnun á fasteignamarkaði og að fasteignaverð lækki milli ára á seinni hluta ársins.