Fjármálaeftirlitið hefur endurnýjað starfsleyfi Auðar Capital og samtímis hefur fyrirtækinu fengið auknar heimildir sem verðbréfafyrirtæki. Þetta kemur fram á Vísi og er vísað heimasíðu FME.

Upphaflegt starfsleyfi Auðar var samkvæmt frétt á vef FME einskorðað við eignastýringu og fjárfestingaráðgjöf en frá og með 4. apríl sl. hefur fyrirtækið einnig heimild til þess að annast útboð fjármálagerninga án sölutryggingar og til töku verðbréfa til viðskipta á skipulögðum markaði.

„Til viðbótar við ofangreinda þjónustuþætti tekur endurútgefið starfsleyfi Auðar Capital hf. til vörslu og stjórnunar í tengslum við einn eða fleiri fjármálagerninga fyrir reikning viðskiptavinar, þ.m.t. vörslu fjármálagerninga og tengdrar þjónustu, svo sem vegna fjármuna eða trygginga, veitingar lánsheimilda, ábyrgða eða lána til fjárfestis þannig að hann geti átt viðskipti með einn eða fleiri fjármálagerninga ef verðbréfafyrirtæki sem veitir lánsheimildina eða lánið annast viðskiptin, ráðgjafar til fyrirtækja um uppbyggingu eigin fjár, stefnumótunar og skyldra mála og ráðgjafar og þjónustu varðandi samruna fyrirtækja og kaupa á þeim, þjónustu í tengslum við sölutryggingu og gjaldeyrisþjónustu ef umrædd viðskipti eru liður í fjárfestingarþjónustu skv. a, b, c, d og e lið 2. tl. 1. mgr. 25. gr. áðurnefndra laga,“ segir á vef FME og er þar vísað til laga um fjármálafyrirtæki.