Orð Seðlabankastjóra í ræðu og riti í gær benda til þess að meiri líkur en áður séu á myndarlegri vaxtalækkun þann 8. desember næstkomandi og að alllangt sé enn í að veruleg breyting verði á gjaldeyrishöftum. Þetta segir í morgunkorni greiningardeildar Íslandsbanka í dag.

Fjármálastöðugleiki, rit Seðlabankans, kom út í gær og segir í formála Más Guðmundssonar að þótt það muni skýrast á næstu mánuðum hvort ólögmæti gengistryggingar leiði til þess að eigendur fjármálafyrirtækja þurfi að leggja þeim til aukið eigið fé þá nægi það ekki til þess að hægt sé að losa verulega um gjaldeyrishöftin. Mikilvægt sé í því sambandi að traust á fjármálakerfið sé nóg til þess að geta starfað eðlilega án gjaldeyrishafta og fullrar innlánatryggingar stjórnvalda. Auk þess ríði á að endurreisa virkni fjármálamarkaðia og opna á ný aðgang að erlendum fjármálamörkuðum.

Greining Íslandsbanka túlkar orð Más á þá lund að miklar líkur séu á að gjaldeyrishöft veðri enn við líði að verulegu leyti eftir ágúst á næsta ári, en þá renna út núverandi lagaheimildir um gjaldeyrishöft.

Spá 75 punkta lækkun

Í ræðu sem Már hélt á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða um svipað leyti og ofangreint rit kom út heggur hann að mörgu leyti í sama knérum. Bætti hann þó við að nýjasta verðbólgumæling Hagstofunnar, sem birt var í gærmorgun, undirstrikaði að svigrúm væri enn til staðar til frekari lækkunar seðlabankavaxta líkt og peningastefnunefnd Seðlabankans taldi eftir síðustu vaxtaákvörðun.

Einnig nefndi hann að 2-2,5% virkir raunstýrivextir, eins og nú er raunin, væru einfaldlega of háir miðað við stöðu hagkerfisins eftir að markmið um gengisstöðugleika og verðbólgu hafa náðst. Ef höfð er hliðsjón af því að flest bendir til að stjórnvöld muni fara sér hægt við afléttingu gjaldeyrishafta á næsta ári má því segja að flest skilyrði séu til staðar fyrir talsverða vaxtalækkun þann 8. desember, og er ekki útilokað að stigið verði stærra skref þá en þeir 50 punktar sem við spáðum nýverið að yrði raunin. Í þessu ljósi er talsverðar líkur á 75 punkta lækkun þótt við teljum enn að 50 punkta lækkun sé líklegust,“ segir í morgunkorni Íslandsbanka.