Austurríski bankinn Volksbank verður tekinn yfir af ríkinu, en bankinn hefur barist í bökkum um nokkurt skeið. Bankinn er meðal annars í eigu austurríska Raffeisen-bankans og þýska DZ-bankans. Er sagt frá þessu á mbl.is .

Alls verður 480 milljónum evra spýtt inn í bankann og þar af munu 250 milljónir koma frá ríkinu, sem býst við að eiga á bilinu 40-49% að þessum aðgerðum loknum.

Fjármálastofnanir í Austurríki hafa ekki farið varhluta af evrukrísunni, ekki síst vegna mikilla viðskipta við lönd í Austur-Evrópu. Matshæfisfyrirtækið Standard and Poor´s lækkaði lánshæfismat Austurríkis úr AAA niður í AA+ í janúar.

Volksbank var stofnaður árið 1850 og er með höfuðstöðvar sínar í Vín. Auk þess að starfa í Austurríki er hann einnig mjög virkur í mörgum Austur-Evrópuríkjum og fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu.

Volksbank í Austurríki.
Volksbank í Austurríki.