Auður Capital hf. hefur lokið fjármögnun á sínum fyrsta fagfjárfestasjóði (Private Equity Fund) - AuÐi I.

Í fréttatilkynningu frá Auði Capital segir að mikill áhugi hafi verið meðal fjárfesta á þátttöku í sjóðnum og var heildarfjárhæð áskrifta 3,2 milljarðar króna.  Alls tóku 21 fjárfestir þátt og meðal þeirra eru flestir af stærstu lífeyrissjóðum landsins sem og aðrir stofnana- og fagfjárfestar.

„AuÐur I mun nýta tækifæri sem felast í vaxandi mann- og fjárauð kvenna. Sjóðurinn mun fjárfesta í starfandi fyrirtækjum sem hafa mikla vaxtarmöguleika. Sérstaklega verður horft til fyrirtækja í eigu eða undir stjórn kvenna og fyrirtækja sem bjóða upp á vörur eða þjónustu sem höfða sértaklega til kvenna,“ segir í tilkynningunni.