Fulltrúar Bændasamtakanna munu hitta embættismenn í atvinnuvegaráðuneytinu klukkan 13:00 í dag og fara yfir stöðu mála vegna yfirvofandi kals, heyskorts og kuldatíðar á Norður og Austurlandi. Samkvæmt frétt Bændablaðsis óska samtökin eftir því að komið verði á fót viðbragðshóp sem muni koma að málum.

Slíkum starfshóp yrði meðal annars ætlað að meta þörf á heymiðlun og hugsanlega koma slíkri miðlun á fæturnar, en víða eru bændur orðnir heylitlir eftir óvenju langan vetur á fóðrum. Þá heyjaðist víða minna á síðasta ári en í meðal ári vegna þurrka.