MP banki keypti á miðvikudag 1,9 milljónir hluta í Vodafone. Ætla má að kaupverðið hafi numð tæpum 48 milljónum króna miðað við dagslokagengið 25,55 krónur á hlut.

Fram kemur í flöggun að MP banki átti 16.392.940 hluti í Vodafone en átti eftir viðskiptin 18.292.940 hluti í félaginu. Það jafngildir 5,36% hlut. Miðað við dagslokagengið nemur markaðsverðmæti hlutabréfa MP banka í Vodafone 467,4 milljónum króna.