Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,2% í 12.163,66. Olíurisinn Exxon Mobil var í sögulegu hámarki við lokun markaðar í fjórða skiptið í röð. Uppjör fyrirtækja hafa verið að mestu jákvæð og hefur vísitalan hækkað í kjölfar þess. Microsoft lækkuðu við lokun markaðar í gær í kjölfar birtingar uppgjörs sem var undir væntingum greiningaraðila.

NASDAQ hækkaði um 1% í 2379,1.

S&P 500 vísitalna hækkaði um 0,5% í 1389,08.

Olíufatið lækkaði um 1,04 Bandaríkjadali niður í 60,36 dali á fat, en það er 1,7% lækkun.