Fjármálastofnanir og bílaframleiðendur voru áberandi yfir þau fyrirtæki sem lækkuðu hvað mest í Evrópu í dag.

Í Þýskalandi lækkaði BMW bílaframleiðandinn mest, um 10,44%. Commerzbank lækkaði um 9,28%, Man um 8,36%, Volkswagen um 7,71% og Deutsche Bank um 7,6%.

Á Ítalíu lækkaði Fiat Industrial mest, um 10,48%, Pirelli um 10,36% og bílaframleiðandinn Fiat um 9,64.

Í Frakklandi lækkaði Renault um 9,27% og Peugeot um 9,1%. Societe Generale lækkaði um 8,42%.