Nú fyrir stundu var birt niðurstaða framhaldsaðalfundar Landbankans en líkt og áður hefur verið fjallað um var bankaráðskosningu frestað eftir að Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, dró framboð sitt til baka.

Eftirtaldir einstaklingar voru kjörnir aðalmenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar: Helga Björk Eiríksdóttir, Berglind Svavarsdóttir, Danielle Pamela Neben, Einar Þór Bjarnason, Hersir Sigurgeirsson, Jón Guðmann Pétursson og Magnús Pétursson.

Ásbjörg Kristinsdóttir og Samúel Guðmundsson voru kjörin sem varamenn. Jafnframt var Helga Björk Eiríksdóttir kjörin formaður bankaráðs.