Lánin voru á háum verðtryggðum vöxtum og öllum ljóst við kaupin að það yrði erfitt að standa undir því,“ segir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, fyrrverandi stjórnarformaður Skeljungs og einn eigenda félagsins Skel Investments. Sumarið 2008 gekk félagið frá kaupum á 51% hlut í Skeljungi af Glitni.

Svanhildur segir að bankinn hafi dregið að ganga frá sínum skyldum í kaupsamningnum og ekki afhent kaupendum hlutinn áður en Glitnir fór á hliðina. „Eftir fall bankans neitaði hann að standa við þá kaupsamninga sem gerðir voru og því fengum við Skeljung með mun meiri skuldum en samningar sögðu til um,“ segir Svanhildur Nanna. Hún og meðeigendur hennar áttu þegar mest var rúman 90% hlut í Skeljungi í öðrum félögum. Skel Investments fékk lánað 1,4 milljarða króna hjá Íslandsbanka fyrir kaupunum á 51% hlutnum. Á móti settu eigendur Skel Investments, Svanhildur, maður hennar Guðmundur Þórðarson og Birgir Þór Bielvedt, sem síðar seldi hlut sinn, á móti eigið fé upp á 1,5 milljarða króna. Lánið hafði einn gjalddaga og bar það 9,9% verðtryggða vexti. Lánið var allt veðsett Íslandsbanka. Um jólin í fyrra keypti félagið SF IV slhf., félag í rekstri Stefnis, dótturfélags Arion banka, allt hlutafé í Skeljungi og færeyska olíufélaginu P/F Magn.

Nýir eigendur, sem að mestu voru lífeyrissjóðir, tóku við rekstrinum á nýju ári. Áður en af kaupunum varð hafði Íslandsbanki tekið yfir hlut Skel Investments í Skeljungi, sá var þá orðinn 34%. Skel Investments var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavíkur 22. apríl síðastliðinn.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast tölublaðið hér að ofan undir liðnum Tölublöð .