Hlutabréf í Barclays banka hafa fallið um rúm 9% á markaði í London í dag. Samkvæmt því sem segir á fréttaveitu Bloomberg stafar lækkunin af hræðslu fjárfesta um að bankinn þurfi að afskrifa háar upphæðir á næstunni. Talsmenn bankans neita þessu.