Stjórn Baugs hefur sent inn tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem staðfest er að óskuldbindandi tilboð hafi komið fram frá Baugi Group í útistandandi hlutabréf Mosaic. Tilboðið felur í sér að greitt verði 17,5 krónur á hlut fyrir bréf Mosaic.

Tilboðið er gert í nafni Newco, nýs hlutafélags sem er í eigu Baugs og annara fjárfesta, og er gert ráð fyrir að greitt verði í hlutafé.