„Það er ekki jafn kristileg starfsemi í gangi þarna og nafnið bendir til,“ segir leikstjórinn og tónlistarmaðurinn Ágúst Bent Sigbertsson, löngum þekktur sem Bent í XXX Rottweiler hundum. Fram kom í Lögbirtingablaðinu á dögunum að Bent hefði stofnað félagið Bentlehem.

Tilgangur félagsins er vinnsla afþreyingarefnis, kvikmyndagerð, auglýsingagerð og tengd starfsemi. Bent segir nóg að gera í auglýsingagerðinni en hann hefur m.a. gert þær nokkrar með Steinda Jr. fyrir ýmsar auglýsingastofur. Þar að auki gerði hann nokkrar þáttagerðir með Steindanum. „Auglýsingagerðin er sú sjónvarpsframleiðsla sem er virkust og gefur meira af sér. Það er meira ströggl að framleiða skemmtiefni,“ segir hann.