Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær var lagður fram listi yfir þau þingmál sem ríkisstjórnin hefur afgreitt frá sér frá því hún tók við völdum í lok janúar. Þar er um að ræða 30 frumvörp og þingsályktunartillögur.

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur gagnrýnt ríkisstjórnina, og þá sérstaklega forsætisráðherra, fyrir að ýkja síðustu vikur þann fjölda mála sem lögð hafa verið fram á Alþingi.

Í ábendingu sem Birgir sendi fjölmiðlum í gær kemur fram að aðeins 16 þessara 30 mála hafa nú verið lög fram á þingi.

„Sjö þingmál hafa þar með bæst við frá því í síðustu viku en fjórtán frumvörp eða stjórnartillögur eru enn einhvers staðar á leiðinni milli Stjórnarráðsins og Alþingishússins,“ segir Birgir.

„Spyrja má hvort þessi mál liggi óafgreidd í þingflokkum stjórnarflokkanna eða hvort samningar við Framsóknarflokkinn taki svona langan tíma. Það er að minnsta kosti ekki rétt sem ráða mátti af orðum Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á blaðamannafundinum, að þingið sé með einhverjum hætti að draga lappirnar við afgreiðslu þessara mála.“

Þá vekur Birgir athygli á því að aðeins 9 af þessum 30 málum tengjast hagsmunum atvinnulífs og heimila samkvæmt skilgreiningu ríkisstjórnarinnar sjálfrar.

„Ef ríkisstjórnarflokkarnir settu þessi 9 mál í forgang væri ekkert því til fyrirstöðu að koma þeim með eðlilegum hætti í gegnum þingið og ljúka jafnframt þingstörfum þannig að eðlilegur tími gefist til að heyja kosningabaráttu.,“ segir Birgir.

„Vandinn eykst hins vegar ef þessir flokkar ætla sér líka að fá öll hin málin afgreidd fyrir þinglok.“