Bjarney Harðardóttir hefur látið af störfum sem markaðsstjóri Íslandsbanka.

Bjarney hefur starfað á markaðssviði bankans um árabil og nú síðast sem markaðsstjóri. Áður starfaði Bjarney sem markaðsstjóri Nathan og Olsen.

Samkvæmt upplýsingum frá Íslandsbanka hefur ekki verið ráðið í stöðuna.