Vodafone hefur gengið frá ráðningu nýs rekstrarstjóra félagsins á Norðurlandi. Mun Bjarni Freyr Guðmundsson taka við stöðunni, en hann er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri.

Bjarni þekkir til hjá Vodafone en hann starfaði sem viðskiptastjóri á fyrirtækjamarkaði hjá félaginu á árunum 2006 til 2008. Í stöðu sinni sem rekstrarstjóri mun hann bera ábyrgð á rekstri einstaklings- og fyrirtækjamarkaðar á Akureyri.