Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent stjórnum fyrirtækja sem eru að hluta eða öllu leyti í ríkiseigu bréf með tilmælum um að þeir gæti aðhalds við breytingar á gjaldskrám.

Í bréfinu bendir hann á að í aðdraganda að gerð kjarasamninga hafi verið lögð áhersla á það af hálfu allra sem að komu að skapaðar yrðu forsendur fyrir auknum kaupmætti með lágum nafnlaunabreytingum og verðlagsaðhaldi. Hin þráláta verðbólga sem ríkt hafi á Íslandi minnki samkeppni, hækki vexti, slævi verðskyn og haldi niðri lífskjörum. Ríkisstjórnin hafi stutt þessa viðleitni samningsaðila með yfirlýsingum frá 15. nóvember og 21. desember.

„Verði kjarasamningar á almennum markaði staðfestir mun ríkisstjórnin taka til endurskoðunar og lækkunar nýálögð gjöld samkvæmt lögum um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga (verðlagsbreytingar ofl). Miðað er við að gjaldskrárhækkanir ríkisins verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands næstu tvö árin. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir einnig að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því að fyrirtæki í ríkiseigu, þ.m.t. orkufyrirtæki, gæti ítrasta aðhalds við gjaldskrárbreytingar á yfirstandandi ári,“ segir í bréfinu.

Þá sé mikilvægt að fyrirtæki í ríkiseigu taki virkan þátt í þeirri viðleitni að draga úr hækkun verðlags og efni ekki til hækkana umfram það sem algjörlega nauðsynlegt geti talist. Ljóst sé að eigi fyrirætlanir um lágar nafnlaunabreytingar og aukinn kaupmátt að ganga eftir sé nauðsynlegt að draga úr eða koma í veg fyrir eins og mögulegt sé hækkanir sem áhrif hafi á afkomu launþega.

„Því er þeim eindregnu tilmælum beint til allra fyrirtækja í ríkiseigu að fyllsta aðhalds verði gætt varðandi breytingar á gjaldskrám og að þær ákvarðanir um gjaldskrárbreytingar sem þegar hafa verið ákveðnar verði endurmetnar í ljósi ofangreindra markmiða,“ segir Bjarni í bréfinu.