Björgólfur Jóhannsson, sem hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins undanfarin fjögur ár, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku samtakanna. Þetta kemur fram í frétt á vefsíðu SA.

„Þegar ég tók við formennsku SA var ætlunin mín að gegna því að hámarki í þrjú ár, fengi ég til þess stuðning félaga minna. Þau eru nú orðin fjögur og gott að nýr aðili taki við keflinu. Ég vil þakka öllum þeim sem ég hef starfað með á vettvangi SA, stjórnarfólki og starfsfólki samtakanna og aðildarfélögum fyrir stuðninginn. Einnig vil ég þakka forsvarsfólki samtaka launþega fyrir traust og gefandi samstarf á undanförnum árum,“ er haft eftir Björgólfi í tilkynningunni.