Björgólfur Jóhannsson hefur tekið sæti í stjórn Burðaráss. Björgólfur hefur verið forstjóri Icelandair Group frá ársbyrjun 2008. Þá var hann kjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins í marsmánuði þessa árs. Björgólfur var forstjóri Icelandic Group um tveggja ára skeið frá 2006, starfaði sem framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar frá 1999, formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008, var framkvæmdastjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs Samherja frá 1996 og fjármálastjóri Útgerðarfélags Akureyringa frá 1992-1996. Björgólfur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1983.