Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir hefur tjáð sig um skýrsluna um einkavæðingu Búnkaðarbankans í færslu á vefsíðu sinni. Hann bendir á að rétt eins og í Al-Thani málinu nokkrum árum síðar hafi Hauck & Aufhäuser dæmi verið ein lygaflétta til að blekkja stjórnvöld, markaðinn og almenning.

„Svika-hópurinn“

„Hópur þjóðkunnra tækifærissinna setti saman Svika-hópinn sem átti ekkert erlent fjármagn og var skuldsettur upp að öxlum, notaðist við lánsfé og tók síðan fleiri lán til viðbótar. Allt einkavæðingarferlið breyttist strax og Svika-hópurinn kom að því. Einkavæðing beggja banka fór þá að miðast í öllu við þarfir þessa hóps og óskir, tímasetningar og framkvæmd öll fór eftir duttlungum hans,“ segir í pistli sínum.

Björgólfur Thor bendir jafnframt á að hann hafi skrifað um málið í bók sinni, Billions to Bust and Back. Hann segist hafa skrifað bréf til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Geirs H. Haarde fjármálaráðherra og einkavæðingarnefndarinnar ásamt því að hafa mætt í fjölmiðlaviðtöl þar sem að hann sagði að einkavæðingarferli beggja bankanna væru ógagnsæ og óskýr.

Endurtóku leikinn með riddara á arabískum hesti

Hann minnist einnig fléttu Ólafs Ólafssonar og þau dómsorð sem féllu í Hæstarétti. „Svo vel þótti Ólafi Ólafssyni og mönnum hans til takast með blekkingarnar, að þeir voru reiðubúnir að endurtaka leikinn rúmum 5 árum síðar, haustið 2008, og þá með riddara á arabískum hesti, sem kom til bjargar á ögurstundu. Um þær æfingar hefur Hæstiréttur haft miður falleg orð.“

Að lokum tekur Björgólfur Thor fram að hann hafi alltaf verið hlynntur ítarlegri rannsókn á einkavæðingu Landsbankans og Búnaðarbankans 2002 og 2003 og ítrekar það nú. „Það er löngu tímabært að sú saga verði öll sögð, svo þeir beri skömmina sem eiga hana og aðrir fái uppreist æru. Og tímabært að stjórnmálamenn standi við yfirlýsingar sínar um gagnsæi. Ég er reiðubúinn að mæta fyrir hvaða nefnd sem er og fara ítarlega yfir einkavæðingu Landsbankans,“ segir hann að lokum.