Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra flutti í gær erindi um loftslagsbreytingar og hlut Íslands í öryggismálum á Norður-Atlantshafi í Belfer Center í Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Að loknu erindinu tók ráðherrann þátt í málstofu um viðfangsefnið.

Í máli sínu ræddi Björn um vaxandi hlutverk borgaralegra stofnana, lögreglu og landhelgisgæslu, við öryggisgæslu á sjó og landi. Ekki væri skynsamlegt að beita herflota við að gæta öryggis á siglingaleiðum eða til að leysa úr deilum um yfirráð á Norðurpólnum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Ráðherrann ræddi brottför bandaríska varnarliðsins frá Íslandi og taldi hana bera vott um skammsýni með hliðsjón af miklum hagsmunum Bandaríkjamanna af því að fyllsta öryggis sé gætt á siglingaleiðum olíu- og gasflutningaskipa. Hann hvatti til þess að samstarf yrði aukið milli landhelgis- og strandgæslna á N-Atlantshafi.

Í dag heimsótti Björn stöð bandarísku strandgæslunnar í Boston en hún starfar í nánum tengslum við Landhelgisgæslu Íslands. Fram kemur á heimasíðu ráðherrans að sérstaklega hafi hann fylgst með hvernig tekið sé við gasflutningaskipum á svæðinu.

Ráðherrann hvatti til aukinnar samvinnu Landhelgisgæslu Íslands og bandarísku strangæslunnar. „Hér í Boston þekkja strandgæslumenn vel til þess, sem landhelgisgæslan gerir og landhelgisgæslumenn hafa verið hér á ferð til skrafs og ráðagerða," segir Björn Bjarnason á heimasíðu sinni.