Jón Davíð Davíðsson, stofnandi Húrra Reykjavík, hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri verslunarinnar eftir rúmlega sjö ára starf og Björn Þorláksson hefur tekið við stöðunni.

Jón Davíð stofnaði Húrra Reykjavík árið 2014 ásamt Sindra Jenssyni og hafa undanfarin ár svo sannarlega verið viðburðarík hjá þeim félögum. Ásamt öðrum hafa þeir Jón Davíð og Sindri stofnað veitingastaðina Flatey, Yuzu og nú nýlega næturklúbbinn Auto. Næsta skref hjá Jóni er að vinna að enn frekari uppbyggingu Yuzu og Auto sem framkvæmdastjóri.

„Björn kemur beinustu leið úr unglingastarfi Húrra,“ segir í fréttatilkynningu en frá árinu 2015 hefur hann verið í fullu starfi, bæði í þjónustu og síðar á skrifstofu í störfum tengdum fjármálum.

Meðfram störfum sínum í Húrra hefur Björn lokið tveimur háskólagráðum í viðskipta- og tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að leika knattspyrnu með Knattspyrnufélagi Vesturbæjar.

„Við teljum okkur virkilega lánsöm enda hefur Björn sýnt einstaka leiðtogahæfileika og frumkvæði. Mun hann nú stýra daglegum rekstri Húrra og leiða uppbyggingarstarf fyrirtækisins á komandi árum,“ segir í tilkynningunni.