Bláa Lónið opnar á ný, á morgun laugardag, eftir að hafa verið lokað í fjóra mánuði eða frá 8. október síðastliðnum samkvæmt tilkynningu frá Bláa lóninu.

Bláa Lónið, veitingastaðurinn Lava, Silica hótel og verslun Bláa Lónsins í Svartsengi, verða opin allar helgar fram á vor og Retreat Spa mun vera opið á laugardögum. Retreat hótel og veitingastaðurinn Moss opna einnig þó með takmarkaðri opnunartíma. Í tilkynningu kemur fram að í ljósi sóttvarnarráðstafana séu gestir hvattir til að bóka heimsókn sína fyrirfram á vefnum.