Eignarhaldsfélagið Stofn hefur keypt í Exista fyrir 70,5 milljónir króna , samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 3.000.000 hluti á genginu 23,5.

Bogi Óskar Pálsson, stjórnarmaður í Exista, fer með ráðandi eignarhlut í Eignarhaldsfélaginu Stofni. Eftir viðskiptin eiga fjárhalgslega tengdir aðilar 7.000.000 hluti.