Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og Lagnakerfamiðstöð Íslands hafa gert með sér saming um rekstur og umsjón Háskólans í Reykjavík á starfsemi, fasteignum og búnaði Lagnakerfamiðstöðvar Íslands á Keldnaholti, segir í fréttatilkynningu.

Í dag munu Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri og jafnframt formaður LKÍ og Kristján Ottósson framkvæmdastjóri LKÍ undirrita samninginn ásamt fulltrúum frá Háskólanum í Reykjavík, dr. Guðfinnu S. Bjarnadóttur, rektor og Bjarka A. Brynjarssyni, forseta tækni- og verkfræðideildar HR.

Markmið samningsins er að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu Lagnakerfamiðstöðvar Íslands, auka nýtingu hennar og þróa ný áherlsusvið í starfsemi stofnunarinnar. Í samningum felst að Háskólinn í Reykjavík tekur að sér að sjá um allan rekstur, fasteignir og tækjabúnað stofnunarinnar, sem og að þjóna skólum landsins við uppbyggingu kennslufræða í lagnatækni og endurmenntun lagnamanna, iðnaðarmanna og hönnuða, í atvinnulífinu og opinberra stofnanna í lagnatækni, segir í tilkynningu.

Fyrir liggur að Háskólinn í Reykjavík mun flytja alla starfsemi sína í nýtt húsnæði í Vatnsmýri. Á þeim tímamótum mun Lagnakerfamiðstöð Íslands flytja alla starfsemi sína í húsnæði Háskólans í Reykjavík.