Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 1,16% í viðskiptum dagsins í dag. Bréf Marel lækkuðu um 1,32%, Icelandair um 0,45% og Eimskips um 0,18%. Á móti hækkuðu bréf Haga um 1,71%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 626,8 milljónum króna.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,63% í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,82% og sá óverðtryggði um 0,11%. Velta á skuldabréfamarkaði nam 9,6 milljörðum króna.