Gengi hlutabréfa Icelandair Group féll um 2,02% í 320 milljóna króna veltu í Kauphöllinni í dag. Þetta var mesta gengislækkunin á markaðnum í dag. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Sjóvár um 1,89% og HB Granda um 1,27%.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,98%, TM um 0,69%, N1 um 0,56% og Haga um 0,24%.

Á móti hækkaði gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 1,82%, Eimskips um 0,60% og Marel um 0,46%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,6% og endaði hún í 1.160 stigum.