Fangar í fangelsi í Brixton í suðurhluta Lundúnum ætla að opna veitingastað. Þar munu þeir sjálfir þjóna almenningi til borðs.

Matsölustaðurinn verður opnaður í samstarfi við Clink velgjörðarsjóðinn sem nú þegar rekur tvo aðra matsölustaði með þessu fyrirkomulagi. Hundrað manns munu rúmast á þessum veitingastað, en tilgangurinn með honum er að þjálfa fanga til þess að takast á við framtíðina.

Veitingastaðurinn verður opnaður í byggingu sem áður hýsti skrifstofu fangelsisstjórans