Guðjón Arngrímsson, forstöðumaður upplýsingasviðs Icelandair, segir að nokkrar breytingar verði gerðar á áælunarflugi félagsins í vetur.

Heldur verður dregið úr áherslu á flugi til Bandaríkjanna en meiri þungi settur í Evrópuflugið. Þannig mun flug til Baltimore í Bandaríkjunum leggjast af í tvo mánuði í vetur, en Manchester í Bretlandi verður aftur á móti fastur viðkomustaður félagsins í allan vetur.