Henning Freyr Henningsson framkvæmdastjóri Smáralindar ehf. og Helgi Marinó Magnússon framkvæmdastjóri Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf. hafa látið af störfum. Í stjórnendastöður hjá Fasteignafélagi Íslands, eiganda Eigarnahaldsfélagsins Smáralindar ehf., hafa þrír verið ráðnir. Fjármálastjóri er Jóhann Sigurðsson, markaðsstjóri er Guðrún Margrét Örnólfsdóttir og rekstrarstjóri er Kristinn Jóhannsson. Hann er fyrrverandi rekstrarstjóri Smáralindar ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar frá Fasteignafélagi Íslands hf. Breytingarnar eru gerðar samhliða samþykkt á nýju skipuriti. Það felur í sér að dagleg stjórnun Eignarhaldsfélags Smáralindar ehf færist til móðurfélagsins. Er það liður í að undirbúa félagið fyrir fyrirhugaða skráningu í Kauphöll, að því er segir í tilkynningu.

Sturla Eðvarðsson hefur verið ráðinnframkvæmdastjóri Fasteignafélags Íslands ehf., Eignarhaldsfélagsins Smáralindarehf. og Smáralindar ehf.