Breytingar voru gerðar á stjórn Straums-Burðaráss fjárfestingabanka á stjórnarfundi sem hófst klukkan 17:30 í dag.

Þar var samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins ákveðið að Magnús Kristinsson tæki sæti sem varaformaður í stað Eggerts Magnússonar sem kosinn var varaformaður á aðalfundi félagsins fyrir skömmu.

Ekki er vitað hvort fleiri stjórnarbreytingar séu á döfinni hjá félaginu.