Ingvi Hrafn Óskarsson
Ingvi Hrafn Óskarsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Formaður stjórnar RÚV segir að óhjákvæmilegt hafi verið, vegna nýrra laga um RÚV sem tóku gildi í morgun, að ljúka ráðningarsamningi við útvarpsstjóra. Páll Magnússon greindi starfsmönnum RÚV frá því í hádeginu að hann myndi láta af störfum.

„Það er ekki forsenda stjórnar fyrir þessari niðurstöðu að um hafi verið að ræða trúnaðarbrest milli stjórnar RÚV og útvarpsstjóra. Hins vegar er óhjákvæmilegt út af breyttum lögum, sem fela í sér að festa þarf ráðningatíma útvarpsstjóra til fimm ára, að auglýsa stöðuna. Til þess að gera þá breytingu er óhjákvæmilegt að ljúka núverandi ráðningasamningi útvarpsstjóra. Þegar þessi afstaða stjórnar lá fyrir var það sameiginlega niðurstaða stjórnar og Páls að hann láti nú af störfum. Við þökkum honum fyrir samstarfið og vel unnin störf á erfiðum tímum,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, stjórnarformaður RÚV.

Páll segir aftur á móti í tilkynningu sem hann sendi til starfsmanna að ástæða uppsagnarinnar séu þær að hann telji sig ekki njóta nægilegs trausts í stjórn Ríkisútvarpsins til að gegna stöðunni áfram með árangursríkum hætti á erfiðum tímum.

Ingvi Hrafn segir ekki búið að ákveða hvenær staða útvarpsstjóra verði auglýst. „En ég geri ráð fyrir því að menn reyni að vinna þetta hratt og vel,“ segir hann.