Sameining British Airways og spænska flugfélagsins Iberia var samþykkt núna í morgun.  Sameinað flugfélag flytur um 57 milljónir farþega á ári.

Hluthafafundur BA var haldinn í Westminister í London í morgun og var tillaga um sameiningu samþykkt.  Móðurfélag flugfélaganna mun heita International Airlines Group (IAG).