Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 11,9%, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan október, er 354,4 stig (júní 1987=100), og hækkar um 0,60% frá fyrra mánuði, segir Hagstofan.

Vísitalan gildir fyrir nóvember.