Vísitala byggingarkostnaðar hefur hækkað um 7,0% á síðustu 12 mánuðum samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Vísitala byggingarkostnaðar sem gildir fyrir júlímánuð er 102,1 stig (desember 2009=100) en hún var reiknuð um miðjan júní sl. Er það hækkun um 0,3% frá fyrri mánuði.