Hlutabréf Century Aluminum hafa hækkað um 8% í Kauphöllinni í dag.

Félagið kynnti uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung á fimmtudag síðastliðinn, eins og fjallað hefur verið um hér.

Á föstudag hækkuðu bréf félagsins um 8,2%. Með hækkuninni í dag hafa þau því hækkað um 16,9% á tveimur dögum.