Samtals voru nýskráðar 84 bifreiðar hérlendis á fyrstu sjö dögum ársins 2011. Eru það allt fólksbifreiðar fyrir utan 4 sendibíla af jafnmmörgum gerðum. Vinsælasta gerðin á upphafsdögum ársins var Chevrolet sem Bílabúð Benna er með umboð fyrir en af þeirrri tegund voru skráðir 24 bílar. Þar af voru skráðir 20 bílar af gerðinni Chevrolet Lacetti.

Þar á eftir var Hyundai með 10 bíla af fjórum gerðum og Toyota með 8 bíla af þrem gerðum.